EDDA-öndvegissetur og Stofnun Sæmundar fróða við Háskóla Íslands bjóða til
umræðufundar um áhrif áliðnaðarins á samfélög og efnahagslíf, föstudaginn
3. September, kl. 14-15.30.
Samarendra Das er annar höfunda bókarinnar Out of This Earth: East India
Adivasis and the Aluminium Cartel, sem hefur verið kölluð svartbók
áliðnaðarins. Skoðun höfunda er sú að álfyrirtækin séu keyrð áfram af
alþjóðlegum auð- og einokunarhringjum sem samanstanda af
námufyrirtækjum, fjárfestingarbönkum, ríkisstjórnum, málmkaupmönnum og
vopnaframleiðendum. Einnig lýsa þeir hvernig álframleiðslufyrirtækin
arðræna samfélög og steypa þeim í vítahring skulda. Samarendra Das mun
hefja fundinn með því að gera grein fyrir helstu niðurstöðum bókarinnar. Í
ljósi rannsókna Das er vert að spyrja hvort það sé samband milli bágs
ástand efnahagslífs hér á landi og byggingu virkjana og álvera eða hvort
bygging fleiri álvera sé sú lyftistöng sem íslenskt efnahagslíf þurfi á að
halda. Jón Þór Sturluson, dósent við Viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík,
mun bregðast við sjónarmiðum Das og hefja umræður um þau.